Mig vantar pössun...sjálfboðaliði óskast...
Myndir
19.03.2007 16:28:55 / matthildur

Ritgerð smitgerð....

 

Það er ótrúlegt hvað veðrið á Íslandi er agalega breytilegt, ég bara skil þetta ekki...:$ Í gær snjóaði og snjóaði að ég hélt að ég myndi festast inni í húsinu mínu eins og gerist ef það snjóar of mikið, held ég verði að ráða snjómokara sem er búin að moka kl 8 á morgnanna þá er ekkert vesen, en í dag er þetta blíðskapar veður að ég var á tímabili að spá í að skella bara sólabekknum út og fara í sólbað, æfa mig fyrir Kanarí sko;) hehe 

Fólk er örugglega að velta fyrir sér hvað drípur á daga mína, eða eitthvað.... Jah ég er nú bara búin að vera í skólanum og að þykjast læra, er samt búin að vera mjög dugleg að læra sko:haha: er sko búin að vera að vinna upp verkefni svo ég þurfi ekki að taka bækurnar með til Kanarí!

æj nú veit ég ekki hvað ég á að skrifa, hehe! Jú ég fór í skírnarveislu á laugardaginn hjá Hildi og Skaprhéðni sem voru að skíra litlu stelpuna sína Ardísi Hebu, ótrúlega fallegt nafn og passar eiginlega bara vel við litlu prinsessuna...                                                                 nú er ég farin kem vonandi aftur að vörmu spori8|

Matthildur: að reyna að skrifa ritgerð um jarðfræðilegan grunn íslensks lífríkis....

-Mexikanito- estudiando


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 15:12:09 / matthildur

Prófin hafin...

Jamm og jæja, það er svo erfitt að blogg á hverjum degi...það er nóg að blogga bara einu sinni í viku eða sjaldnar...nee hehe ég reyni okey!!

það er nú lítið að segja nema það að prófin eru byrjuð, mjög sérstakt að vera í prófum þar sem ég  má mæta með allar glósur og allar bækur í prófið, ekki slæmt:$ Ég er búin með 2 próf bara 3 eftir:haha:

Jesús ég verð að segja ykkur, ég er nú farin að venjast húsalyktinni (í fjárhúsunum) en mér finnst að hún eigi bara að vera í fjárhúsunum. Ármann fór í sveitina í gær að hjálpa pabba sínum að skipta um númer í lömbunum og ég lýg því ekki að hann tók fjárhúsin með sér heim og var örugglega með eitt stykki lamb í bílnum alla leiðina heim. Bílinn angar af rollulykt, ég skildi ekkert í þessu áðan af hverju í ósköðunum það væri kindalykt af höndunum á mér8| hehe !!!

Svona er lífið... Hver horfir á 6-7 með Guðrúnu og Felix?? hehe verð að viðurkenna að mér finnst hræðilegt að missa af þessum þáttum þeir eru svo skemmtilegir og frólegir, mæli með þeim:lol:

jæja læt þetta duga í bili...

-Matthildur- farin að læra

Mexikanito: vamos a bailar...


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 09:42:30 / matthildur

Hólar og aftur Hólar....

Hvað er betra en að setjast niður svona í morgunsárið og blogga að hætti Hólamanna, hmmm hvað er það eiginlega jah hva veit maður!!

Það var svo ótrúlega erfitt að vakna í morgun að ég var ekki að meika það, en lét mig nú hafa það:$ og það fyrsta sem ég sé er miði sem tilkynnir það að tíminn í dag felli niður....aaarrg og gaaarg ég sá bara rúmið mitt svífa fyrir framan mig en ég fór bara með Guðrúnu Ástu á bókasafnið meðan Pálína fór í tíma....

en jæja ég verð að fara við Pála ætlum aðdrífa okkur heim svo við getum byrjað að læra...já eða bara lagt okkur8|

-Matthildur- Nenni ekki að fara að læra

Mexikanito: Ay q mucha tarea....


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 11:59:27 / matthildur

Spurning dagsins....

Jahá, nú er sko kominn tími til að verða pínu duglegur8)

En ég rakst á þessa ágætu mynd hérna og spurningin er "Hver er þessi unga stúlka á þessari mynd?" Sá sem að getur giskað rétt fær verðlaun:haha: alveg satt....:$

  djöfull, ég get ekki sett myndina inn, en ég get kannski sett hana í mmyndaalbúm til hliðar....

það var nú ekki meira að sinni...

-Matthildur- gettu hver...

Mexikanito: Ya se quien es...


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 10:38:49 / matthildur

Jamm og jæja...kominn tími til...

Ég ákvað að taka þessa Ýsu færslu út, hún er orðin frekar leiðinleg ekki satt.... Ég ákvað að fara ekki í skólann í dag því það er svo ógeðslegt veður úti og mig langaði ekki að vera föst upp á ´Hólum eða einhvers staðar á leiðinni heim í blindbil...það hefði sko ekki verið skemmtilegt! Það er ótrúlegt hvað það styttist í jólin, en það er nú samt orðið pínu jólalegt úti ekki satt? Snjórinn er ótrúlega jólalegur og búðirnar farnar að lýsa upp bæi og borgir! Jeddúdda mía ég var í Reykjavík um daginn, úff minnið mig á að flytja ALDREI til í þessa borg, það er bara hættulegt sko..eg myndi bara kremjast undir öllu þessu fólki sem býr þarna;) hehe já jæja ég ætla nú ekki að hafa þetta lengra en hver veit nema ég komi mjög fljótlega aftur og skrifi smá klausu:haha:

-Matthildur- Hrædd við Reykjavík

Mexikanito: Ya me quiero ir a Mexico...


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 11:45:59 / matthildur

Fiskur... ýsa með kartøflum og tómatsósu

hmm...mér til mikillar gleði og ánægju tá var fiskur í hádegismatinn...skrýtið hvað maður getur glaðst yfir einni máltíð og hvað tá fisk, mamma tekur stundum upp á tví að hafa svoldið oft fisk og stundum enginn fiskur lengi, en í dag var ég virkilega ánægð að fá fisk...:D ýsa með kartøflum og tómatsósu.

Ég er alltaf að pæla og pæla, ótrúlegt hvað ég hugsa mikið tegar ég er í vinnunni ég gæti farið að skrifa bók bráðum. Allt sem mig dreymir hugsa ég um fram að hádegi eða lengur...allt fólkið sem kemur í morgunmat eða hádegismat er mælt út og gagnrýnt, aumingja fólkið! en samt flest á góða vegu, nema tjóðverjar teir eru dónalegir og nískir:evil:

Ég fór í gær í landi í Bergen, jei tað var sko stuð løbbuðum í miðbæinn og viti menn tað blasti við mér líka tessi huge stóra VERO MODA búð, tá brosti mín hringinn:haha: hehe verð nú að segja að vero moda á Íslandi var sko bara krækiber miða við tessa búð, úff ég átti erfitt að hemja mig keypti bara einar vinnu buxur (svartar), bol og pils, ákvað að hafa hemil á mér jah tar sem ég verð nú tarna í hverri viku í allt sumar...hmmm tað gætu reynst mikil útgjøld! Var einmitt að hugsa hvað ég ætti að kaupa næst, jú gallabuxur verða tað og ørugglega bolur eða peysa! Sá samt ótrúlega flottar svartar niðurtrøngar með krumpu framan á...! Svo er ønnur pæling "hvítar buxur?" tetta er meðal annars eitt af tví sem ég er búin að hugsa mikið um í dag, hvort ég ætti að tora í hvítar buxur...:!::!::!:

Teir sem að ekki eru búnir að pakka niður skóladótinu eða eiga gamalt bréfsefni sem teim tætti vænt um að gengi út mega teir alveg senda mér bréf....

adressan er:

Matthildur Birgisdóttir                                                                                           M/V NORRONA                                                                                                         Smyril Line                                                                                                           P.O. BOX  370                                                                                                                        FO 110 Torshavn                                                                                                       The Faroe Islands

hananú...nú bíð ég sko spennt....

Er farin að skoða mig um í Færeyjum...heyrumst...

- Matthildur - í færeyjum

Mexikanito: Voy a comprar cosas....


» 13 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 11:33:25 / matthildur

Gamlar konur....

Jæja tá er tetta allt að koma og allt farið að gera sína hluti...;) ég fékk mér semsagt svona sjóveikis sarmbønd sem eru btw ótrúlega trøng en ég læt mig sko hafa tad, allt til að losna við sjóveikina!! Mamma sagði nú við mig í gær tegar ég sagðist bara ætla að koma heim áður en ég myndi deyja sagði hún bara að tetta væri sko ekkert sjóveiki, ástin eitthvað bla bla....:$ tad var fyndið að hlusta á tad!!

umm...hvað ætlaði ég nú að skrifa, ég var búin að hyugsa svo mikið til að skrifa en tad er allt dottið út hjá mér ! látum okkur nú sjá, í dag vaknaði ég klukkan 6:20 og átti að mæta í vinnuna kl 6:30, tad var allt sett í botn ætlaði sko ekki að fara að mæta of seint...ooo nei... tad var frekar lítið að gera í dag bara tæplega 500 gestir og eiginlega allt gamlar konur á kafi í gemsanum sínum að senda sms, frekar fyndið að sjá gamlar konur sem skrølta áfram með stafinn í annarri og gsm í hinni:haha: Ég er alveg búin að sjá tad að vera thjónn er bara ágætis vinna sko, ágætis peningur...ekki nóg með tað að mar fær laun frá vinnuveitandanum heldur fæ ég slatta af tipsi líka tetta er ekki svona á Íslandi ooo nei, er búin að fá yfir 100 danskar á tremur døgum....bara snilld8|

Ég er farin að leggja mig fyrir næstu tørn en tad eru svo fáir um borð að ég er ekki viss um að tetta verði gott kvøld...en vona tad besta...

- Matthildur - sofa, vinna, borða, sofa, vinna, borða

Mexikanito: Voy a dormir


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 15:55:37 / matthildur

jedúdddda mía.....

Tetta byrjaði svaka vel...hehe nei get nu ekki sagt tad sko! Jah ég var látin fá vinnu skyrtur, svuntu og bindi svaka gellla sko;) Svo fékk ég káettuna mína, svaka fín mar, ég átti ekki að byrja að vinna strax tannig ég fór bara að lesa og koma mér fyrir og svona...tá allt í einu heyri ég bara eitthvað massa gagg í hátalarkerfinu eins og eitthvað væri að (Á pólsku btw)...svo eftir rúmlega hálftíma er sagt á ensku " Tad er allt i góðu núna, tad kom upp smá eldur og búið er að sløkkva hann" ....TAD KVIKKNAÐI Í SKIPINU...ég vissi ekki hvert ég ætlaði...enda var fyrsti vinnudagurinn mjøg erfiður, 600 gestir FRÍTT í mat, já er semsagt að vinna í hlaðborðinu:!::!:

Já svona byrjaði Norræna...tetta er nú búið að vera alveg ágætt, nema kannski fjandans ógleði sem kemur yfir mig alltaf á kvøldin bara á kvøldin ég bara skil tetta ekki....held í vonina að tetta lagist...

Æj ég nenni ekki að skrifa meira, erum í Danmark núna, var bara að koma úr verslunarleiðangri um bæinn:D snilld að geta hoppað í landi svona oðru hvoru, var samt með hálfgerða sjóriðu í búðunum, hehe tad var frekar fyndið sko...

- Matthildur - kveður að sinni....

Mexikanito: voy a regresar...


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 12:35:45 / matthildur

Kveð að sinni....

Jæja verður mar ekki að bogga áður en ég fer á ballarhafið, jú ætli það ekki!! allavega þá er ég að fara suður á eftir með Ármanni hin konan hans ætlar að ferja okkur til Reykjavíkur eða það er að segja Man-inn (vörubílinn). Við leggjum bara af stað um 4 leytið, ætlum svo bara í bíó og út að borða hafa smá kósí stund svona seinasta daginn...ooo þetta verður pínu erfitt að fara en ég kem aftur:$

Æj ég veit ekkert hvað ég á að skrifa ég er svo mikið að hugsa um eitthvað annað þessa stundina, fór í skaffó áðan og keypti mér fullt af garni til að prjóna vettlinga fyrir veturinn, hverjum vantar vettlinga?? leggið inn pöntun:haha: hehe mér finnst ég vera að gleyma að setja eitthvað niður í töskuna mína sem má alls ekki gleymast, er með vegabréfið og heilsuskýrsluna og svörtu fötin mín þá reddast þetta ég verð þá bara að taka eina viku í frí í Danmörku og versla mér föt ef því er að skipta! neinei þetta er allt að koma held ég, held bara að ég sé að verða eitthvað stressuð eða kvíðin en ég hef nú gert annað eins þegar mar fór hérna um árið til Mexico að búa hjá einhverju fólki sem mar þekkti ekki skít vá hvað ég man eftir fyrsta kvöldinu sem ég var þarna, heheh! Fjölskyldan sem ég lenti hjá var biluð í mínum augum þegar ég sá þau fyrst, sjitt ég gleymi þessu ALDREI ég stóð á flugvellinum og heyrðu öskrað MATTHY, MATTHY svo kom "stór" kona hlaupandi á móti mér með blóm og pakka í hendinni, hún stökk á mig og faðmaði mig og kyssti í bak og fyrir. Takið eftir að ég hafði aldrei séð þessa konu fyrr, já þetta var mamma mín í Mexico. djí, svo var mér dröslað út í bíl brunað heim ég dauð fegin að það væri farið beint heim því mig langaði sko að fara að sofa, var búin að ferðast í marga daga og var dauð uppgefin. Oooo nei aldeilis ekki töskunum var skutlað inn í forstofuna og mér hent út aftur, við vorum að fara út að borða, út að borða??  ég átti í stökustu vandræðum með að lesa matsseðilinn en sem betur fer voru myndir í honum svo ég benti bara á einhverja spagettíkássu! hehe já svona var þetta...

Jæja ég kveð þá í bili, veit ekki hvenær ég kem aftur en verð örugglega orðin tvítug þegar ég skrifa aftur:haha: jei...

-Matthildur- vonast til að verða ekki sjóveik...

Mexikanito: me voy a quedar en un barco por un mes


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 18:16:11 / matthildur

OOOOO

ARG OG GARG.....ÉG NENNI EKKI AÐ BLOGGA NÚNA, VAR BÚIN AÐ BLOGGA ÓTRÚLEGA MIKIÐ OG ÞÁ RAK ÉG  MIG Í EINHVERN TAKKA OG ÞAÐ FÓR ALLT TIL ANDSKOTANS....OG VERÐUR ÞAR!!!

HMMM...


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 10:52:01 / matthildur

Sól, sól skín á mig....

....eða réttara sagt á Sauðárkrók:D ooo ég er svo glöð að sólin sé farin að skína á ný, nú líður mér eins og ég sé á Mallorca með stelpunum:p (þetta á að vera sona ullukall, hann er ekki hénna til hliðar) já ég vona að snjórinn verði farinn á morgun, okey ekki of kröfuhörð, hann verður að vera farinn á laugardaginn svo fólkið mitt komist í veislu...svona er að búa á norðurlandi;) alls ekki slæmt samt sko, betra en Reykjavík.

Í dag er sko allt á fullu í undirbúningi við mamma stöndum á haus...eða kannski aðalega mamma...ég reyni að hjálpa8| Mig langaði samt meira í sveitina, kallinn fór sko í sveitina í gærmorgun og kemur ekkli fyrr en í kvöld, en það er nú í lagi við förum á sunnudaginn að kíkja á rollurnar!það er neflega ótrúlega gaman í sveitinni þó það sé ótrúlega ekki góð lykt þar....en hún er nú bara fyrsta hálftímann svo venst hún furðu vel algjör sniiiild. jah það verður stuð að sjá litlu lömbin þau eru svo sæt, vona að það beri einhver rolla á sunnudaginn:$

jæja ég ætla að fara að gera eitthvað af viti, þetta er orðin frekar mikil steypa þetta blogg hjá mér...

- Matthildur - farin að þrífa gardínur

Mexikanito: Vamos a limpiar


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 11:27:25 / matthildur

bara næstum vika....

jæja þá er ég búin að fá að vita að ég náði spænskunni...jeeeiiii...! þá er það bara útskrift næsta laugardag, veisla sjáðu til!

Ég hef oft pælt í því hvað tíminn líður ótrúlega hratt, til dæmis er núna BARA vika og einn dagur þanga til ég byrja að vinna á Norrænu ég man þegar það voru 3 mánuðir... neee okey kannski sona 2 mánuðir;) hehe ! Er orðin ótrúlega stressuð að fara þanna ég á svo eftir að klúðra einhverju að þið trúið því ekki8| eeen það verður bara að koma í ljós hvort ég verð heppin eða einstaklega óheppin... hihi

já er búin að kaupa útskriftar dressið, úff það tók tíma það er erfitt að fara að versla þegar mar veit ekki alveg hvað mar ætlar að kaupa, þá var nú gott að hafa Svanhildi með í búðirnar hún vissi nákvæmlega hvað var til í búðunum og hvað ekki:o

djí...ég veit ekki hvað ég á að bulla meira...kem aftur um helgina og segi fréttir af útskriftinni! vona að ég verði í tölvu á bátnum svo ég geti flutt ykkur fréttirnar...

-Matthildur- ánægð að geta útskrifast...

Mexikanito: Ya voy acabar preba...


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 16:25:32 / matthildur

sjíí....blogg eða hvað??

djí ég þarf svo sannarlega að fara að blogga það er alveg á hreinu...nenni ekki lengur að hafa þessa svörtu stafi þarna á skjánum;) en já ég held að ég bloggi bara í kvöld...er að bíða eftir svari um það hvort ég náði spænsku prófinu mínu eða ekki, ég vona hið besta -Matthildur - bíður og vonar....

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 11:02:47 / matthildur

hmm...

Hvað hefuru gert af þér í lífinu ef þú pælir aðeins í því....

Látum okkur sjá...

(x) klesst bíl vinar/vinkonu (mömmu) - ég var í rétti:D
( ) stolið bíl (foreldranna)
(x) verið ástfangin/n
(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n, neibb 7 9 13,
(x) lent í slagsmálum - Coldplay hérna um árið
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
(x) farið til Mexico - mæli eindregið með því
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði (sem sagt í snjó)
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(
x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
( ) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik" (dress up)
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik ó já og var þekkt fyrir það þegar ég var lítil
(x) verið einmana
( ) sofnað í vinnunni/skólanum, ójá...skil ekki þegar fólk lætur mann horfa á spólu klukkan 8 á morgnanna, það þýðir bara eitt
( ) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni                      

(x) verið kitluð/kitlaður
( ) verið rænd/rændur held alveg örugglega ekki...
(x) verið misskilin/n, ó já ég er sko oft misskilin
( ) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(x) lent í bílslysi/árekstri 

( ) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni jebbs, hérna um árið
( ) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið deja vu
(x) fengið deja vu - ööö já

( ) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel, út já það kemur fyrir belive it or not
( ) verið vitni að glæp,
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
(x) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu) sjitt já!! veit ekki hvað ég hefði gert án þeirra í Mexikó...
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni , jahá það hefur komið fyrir
(x) verið týnd/ur , já týndist einu sinni í strætó í Mexicó...
(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa
(x) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí hahah já mar hélt einu sinni að ég myndi syngja rosa vel
(x
) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (við erum að tala um krónur, fimmkalla og tíkalla hérna) sennilega pulsu eða samloku...
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
(x) verið kysst/ur undir mistilteini ohh nei, en rómantískt samt.
( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x
) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni
( ) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
(x) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
(x) pissað úti

jahá...jæja hver þorir...hehe ekkert svakalegt samt sko, etta var mjög auðvelt..

-Matthildur-


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 17:20:06 / matthildur

Þá stundi mundi...þett' er nóg þett' er nóg...!

...þá stundi....hmmm hver ætli hafi verið í því um helgina? jah ég var nú bara róleg heima á króknum og var ekki einn dropi af alcoholi sem draup í mínum líkama...!

það er bara allt í lagi sko...það kemur önnur helgi, reyndar er nú ekki langt í hana sko....bara hmm 4 dagar aldrei að vita nema það verði tekið forskot á sæluna? hver er game í það? rétt upp hendi þeir sem eru game?

Árshátíðin er á laugardaginn, er ekki stemma fyrir henni! allavega vona ég að þetta verði góð árshátíð, góð hljómsveit og góður matur....allt sem til þarf! Á móti sól klikkar nú ekki eða þeir eru ekki vanir því!

allavega það var ekil meira í bili...nenni ekki að skrifa meit;) hihi

-Matthildur-

mexikanito: vamos a bailar...


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3